Big Red vélarstandur (Engine Stand) — 450 kg til leigu
Traustur vélarstandur á hjólum fyrir vélarviðgerðir og -yfirhalningu. Vélin er fest á standinn og hægt er að snúa henni og halla með sveif, sem gerir aðgengi að öllum hliðum mun auðveldara en að vinna á vélinni á gólfinu eða á bekk. Helstu upplýsingar: Burðargeta: 450 kg / 1000 lbs Snúningsbúnaður með handsveif Fjögur hjól fyrir auðvelda tilfærslu um verkstæðið Boltafestingar fyrir vélarblokk fylgja Tilvalið fyrir þá sem eru að taka vél úr bíl til viðgerðar, skipta um kúplingu/svifhjól, endurbyggja vél eða gera aðra vinnu sem krefst þess að hafa vélina lausa og aðgengilega.
Verð: 500 kr. á dag.
Leigusali getur krafist tryggingargjalds. Tryggingargjaldinu er haldið þar til skil leigunnar hafa verið staðfest.
Staðsetning: Hafnarfjörður, Höfuðborgarsvæðið.
Flokkur: Verkfæri & framkvæmdir
