Flir One Pro hitamyndavél fyrir iPhone til leigu

FLIR One Pro hitamyndavél til leigu. Myndavélin tengist við iPhone og sýnir hitamun sem annars er ekki sýnilegur með berum augum. Hún getur meðal annars komið að góðum notum við að kanna: • Hitatap, kuldabrýr og einangrun • Hita- og gólfhitakerfi • Mögulegan raka eða leka • Rafbúnað og raftæki sem hitna óeðlilega • Vélar, lagnir og ýmiss konar bilanagreiningu Mikilvægar upplýsingar um samhæfni: Þessi útgáfa er með Lightning-tengi og virkar því aðeins með iPhone- og iPad-tækjum sem eru með slíku tengi. Hún virkar ekki beint með iPhone 15 eða nýrri gerðum, þar sem þær nota USB-C-tengi. Með fylgir Lightning-framlengingarsnúra, sem auðveldar notkun með ýmsum símahulstrum og þegar erfitt er að tengja myndavélina beint við símann. Til að nota tækið þarf að sækja ókeypis FLIR ONE-appið í App Store. Mælt er með að setja appið upp og ganga úr skugga um að síminn sé samhæfur áður en tækið er sótt. Tækið er afhent hlaðið ásamt Lightning-framlengingarsnúru. Leigutaki ber ábyrgð á tækinu á meðan á leigutíma stendur.

Verð: 5.000 kr. á dag.

Tryggingargjald: 15.000 kr.

Staðsetning: Háaleiti & Bústaðir, Höfuðborgarsvæðið.

Flokkur: Raftæki

Hleð auglýsingu…

Ertu með spurningu?

Sendu okkur línu og við svörum eins fljótt og við getum.

info@leiguport.is